
Um áramótin síðustu tók til starfa hjá XEINUM Anna Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður. Þessi nýjasta viðbót stofunnar er hokin af reynslu á sviði hinnar æðstu listar (þeirrar, sem skapar þrár í hjörtum eftir vöru þeirri eða þjónustu sem listamaðurinn, af kunnáttu og innsæi matreiðir og leggur á miðla-borð neytenda).
Anna veit fátt skemmtilegra en að lemja járnum í hvítar kúlur á grænum völlum, nema ef vera skildi að vera ein með sínum heittelskaða. Hún er fantagóður hönnuður, hefur mikla reynslu af hönnun firmamerkja (og er góð í því) og hefur umbrotsreynslu sem fáir geta státað af.
Auglýsingaþjónustan var fyrsta stofan sem Anna vann hjá eftir að hún útskrifaðist úr MHÍ (nú Listaháskólinn) árið 1978. Anna byrjaði hjá GBB Auglýsingastofu (hjá Gísla B.) árið 1979 og haustið 1980 lágu leiðir þeirra Guðjóns saman fyrst, þegar hann bættist í hópinn hjá Gísla B. strax eftir útskrift úr MHÍ. Árið 1984 gekk Anna til liðs við Almennu auglýsingastofuna og var þar til ársins 1994.
Í um það bil hálft ár prófaði Anna sjálfstæði sem verktaki, en réð sig svo til Odda snemmsumars 1995. Leiðir hennar og Guðjóns lágu svo aftur saman þegar Guðjón byrjaði sem hönnunarstjóri haustið 1998. Auður Björnsdóttir grafískur hönnuður bættist í Oddahópinn vorið 1999.
Nú erum við XEINN.
Vandfundið er betra.