
Haustið komið með fögur fyrirheit
Nú erum við aftur fullmönnuð eftir sumarleyfi og þvæling, fjarri alvöru lífsins. Auður naut samvisum við steina og ferðamenn, í Steinasafninu á Stöðvarfirði, Anna hefur notað (og notar enn) hvern möguleika til golfiðkunnar og Guðjón varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að þvælast um byggð - og óbyggð ból á jeppanum.
Framundan eru spennandi verkefni og veturinn verður fullur ævintýra. Xeinn er á uppleið, enda getum við allt og gerum það hratt og örugglega. Sjónvarpsauglýsingar, dagblaðaauglýsingar og bæklingar eru „á borðinu” og margt fleira í sigtinu.
