Þá er komið sumar 2009

Nú hafa orðið miklar breytingar á högum okkar hjá Xeinum. Við erum farin til okkar heima og höfum lagt niður starfsemi á Krókhálsinum. Fyrirtækið er flutt í Litlagerði 2 og eins og hjá fleirum, er ekki mikið að gera. Eitt og eitt verk dettur inn og þær litlu tekjur sem er að hafa, sogast í skuldafenið. Við látum samt ekki deigan síga, því hamingjan er fólgin í hugmyndum og framkvæmdum á þeim. Við öndum að okkur gróðurilmi eftir nýafstaðinn rigningarskúr og njótum sumars og sólar.

Myndin hér til hliðar er tekin á horni Tunguvegar og Litlagerðis að kvöldi 16. ágúst 2008. Á myndinni má sjá Xstream jeppann okkar á 49 tommum, þar sem hann stendur fyrir utan heimili okkar, Litlagerði 2. Ljóskeilurnar sem kljúfa loftið, koma frá ógurlegum kösturum sem þurfti leyfi fyrir notkun á, frá flugmálastjórn. Þeim var komið fyrir ofan á jeppanum og hinum í bakgarðinum. Tilefnið var heimboð eitt mikið vegna 50 ára afmælis Guðjóns, þann 17. ágúst, 20 ára afmælis Hafliða JR, þann 15. október og síðast en alls ekki síst 18 ára afmælis Hafsteins, á deginum sjálfum, 16. ágúst.