01.06.2009

Köfunarþjónustan

Nýlega gerði Xeinn merki fyrir Köfunarþjónustuna. Þetta öflugasta fyrirtæki á sínu sviði á landinu, framkvæmir ótrúlegustu hluti neðansjávar, og er virkilega áhugavert að skoða búnaðinn sem þeir nota og sjá neðansjávar-kvikmyndir af vinnu þeirra og ævintýrum. Strangar reglur gilda um umgengni alla og mannaferðir á köfunarstað, enda geta mannslíf verið í húfi. Merkið er að nokkru, byggt á merkjafána sem flaggað er á köfunarstað til að allir sem að koma geti vitað að maður eða menn séu neðansjávar.

26.05.2009

Þá er komið sumar 2009

Nú hafa orðið miklar breytingar á högum okkar hjá Xeinum. Við erum farin til okkar heima og höfum lagt niður starfsemi á Krókhálsinum. Fyrirtækið er flutt í Litlagerði 2 og eins og hjá fleirum, er ekki mikið að gera. Eitt og eitt verk dettur inn og þær litlu tekjur sem er að hafa, sogast í skuldafenið. Við látum samt ekki deigan síga, því hamingjan er fólgin í hugmyndum og framkvæmdum á þeim. Við öndum að okkur gróðurilmi eftir nýafstaðinn rigningarskúr og njótum sumars og sólar.

Myndin hér til hliðar er tekin á horni Tunguvegar og Litlagerðis að kvöldi 16. ágúst 2008. Á myndinni má sjá Xstream jeppann okkar á 49 tommum, þar sem hann stendur fyrir utan heimili okkar, Litlagerði 2. Ljóskeilurnar sem kljúfa loftið, koma frá ógurlegum kösturum sem þurfti leyfi fyrir notkun á, frá flugmálastjórn. Þeim var komið fyrir ofan á jeppanum og hinum í bakgarðinum. Tilefnið var heimboð eitt mikið vegna 50 ára afmælis Guðjóns, þann 17. ágúst, 20 ára afmælis Hafliða JR, þann 15. október og síðast en alls ekki síst 18 ára afmælis Hafsteins, á deginum sjálfum, 16. ágúst.

09.09.2008


Haustið komið með fögur fyrirheit

Nú erum við aftur fullmönnuð eftir sumarleyfi og þvæling, fjarri alvöru lífsins. Auður naut samvisum við steina og ferðamenn, í Steinasafninu á Stöðvarfirði, Anna hefur notað (og notar enn) hvern möguleika til golfiðkunnar og Guðjón varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að þvælast um byggð - og óbyggð ból á jeppanum.

Framundan eru spennandi verkefni og veturinn verður fullur ævintýra. Xeinn er á uppleið, enda getum við allt og gerum það hratt og örugglega. Sjónvarpsauglýsingar, dagblaðaauglýsingar og bæklingar eru „á borðinu” og margt fleira í sigtinu.

02.06.2008


XEINN VERÐUR MERKILEGRI
… og sýnilegri fyrir vikið.

Þeir eru hreint út sagt frábærir hjá Merkjalist í Hafnarfirðinum, snöggir, vandvirkir og  virkilega sanngjarnir í verðum. Við erum ekki bara að segja það, því við höfum í gegn um tíðina, skipt við mjög marga í merkinga- og skiltagerðabransanum og vitum hvað við erum að tala um. Þess vegna er það ekki merkilegt að við skildum velja þá til að merkja okkur.

Nú er líka auðveldara að finna okkur á hæðinni fyrir ofan Harðviðarval.

29.04.2008


Það er okkur mikil ánægja að kynna nýjan og spennandi viðskiptavin XEINS, fyrirtækið Járn og gler, sem selur meðal annars hin frábæru og vönduðu WEBER grill. Reyndar er WEBER ekki einungis grill heldur framleiðir WEBER ýmsa fylgihluti og áhöld fyrir grillara.

Það er mikill hugur í Járni og gleri og höfum við verið að hanna og setja upp fyrir þá skjá-auglýsingar, dagblaða- og tímaritaauglýsingar í ýmsum stærðum og einnig er nýr og glæsilegur bæklingur í vinnslu hjá okkur.

13.03.2008


Nú stendur yfir auglýsingaherferð hjá BoConcept Faxafeni 8, sem vakið hefur verðskuldaða athygli. BURT MEÐ LJÓT HÚSGÖGN, er hrópað á götum úti og bera mótmælendur spjöld með viðeigandi áletrunum.

Þetta er skemmtilega áræðin og djörf hugmynd, sem kemur frá höfuðstöðvum BoConcept. Við hjá XEINUM erum mjög ánægð með samstarfið við BoConcept á Íslandi og höfum notið þess að fá að taka þátt í markaðsmálum þessarar nútímalegu og glæsilegu verslunnar.

LÍFIÐ ER OF STUTT FYRIR LJÓT HÚSGÖGN

Það er ekki talað undir rós og í raun er hægt að segja það megi heimfæra þessi skilaboð yfir á aðra þætti í lífinu. Ef þú er ósátt/ur við eitthvað í þínu fari, eða lífi, hættu þá að væla og breyttu því.

Herferðin er sett fram með umhverfisgrafík, dagblaða- og tímaritaauglýsingum, sjónvarps- og útvarpsauglýsingum, bíóauglýsingum o.fl.

XEINN vann allt efni herferðarinnar. Sjónvarpsauglýsingarnar voru unnar í samvinnu við MONS (Andri Ómarsson) og hljóð sá Óskar Einarsson tónlistamaður um.

01.02.2008


Auður Björnsdóttir, elsti starfskraftur XEINS, fyrir utan Guðjón, yngst að árum, fjölhæf með afbrigðum á hönnunarsviðinu, áhugasamur blakari og „biker”-gella, er heimasíðari XEINS. Auður er t.d. að vinna við uppsetningu þessarar síðu, www.xeinn.is og sér einnig um uppfærslur á síðu KS Verktaka.

Margir af viðskiptavinum okkar, hafa notið góðs af Auði Xeins, á mörgum ólíkum sviðum grafískrar hönnunar. Má þar nefna Inn X, BoConcept, Emilíu, All Senses, Cego, Harðviðarval, KS Verktakar, S. Guðjónsson, Sagafilm, Sjón, Smith & Norland, Þverfell o.fl.

Auður útskrifaðist úr Listaháskólanum 1997 og gekk þá um haustið til liðs við Augljósa merkingu. Þar var hún í ár og tileinkaði sér þekkingu á merkingum sem hefur oft komið að góðum notum. Í upphafi árs 1999, eftir stutta viðdvöl hjá Nota Bene, hóf Auður störf sem grafískur hönnuður hjá Hönnunardeild Odda og vann þar í 8 ár. Þar unnu með henni allir starfsmenn Xeins, Guðjón og Anna.

Þann 1. janúar 2007 hófst nýtt og miklu betra tímabil hjá Xeinum, þegar Auður kom til starfa. Hún er happafengur og helsti Auður Xeins.

24.01.2008



Nýjasta afurð auglýsingastofunnar XEINS, í logohönnun og heimasíðuútliti má sjá á www.seyra.is Það var einmitt efni síðustu fréttar, hún Anna „nýbyrjaða” Þorkelsdóttir sem blómstraði í sköpun sinni á merkinu og útliti heimasíðunnar.

Seyra ehf er nýtt og framsækið fyrirtæki á sviði flokkunar, endurvinnslu og jarðgerðar. Vert er að fylgjast með Seyru, því þeir ætla sér að ryðja braut á nýjum sviðum í endurvinnslu og nýtingu þess sem aðrir ekki vilja.

Við hjá XEINUM erum spennt fyrir áframhaldandi samvinnu við Seyru, sem án efa býður upp á frjósemi og skemmtilegheit í hönnun.

22.01.2008


Um áramótin síðustu tók til starfa hjá XEINUM Anna Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður. Þessi nýjasta viðbót stofunnar er hokin af reynslu á sviði hinnar æðstu listar (þeirrar, sem skapar þrár í hjörtum eftir vöru þeirri eða þjónustu sem listamaðurinn, af kunnáttu og innsæi matreiðir og leggur á miðla-borð neytenda).

Anna veit fátt skemmtilegra en að lemja járnum í hvítar kúlur á grænum völlum, nema ef vera skildi að vera ein með sínum heittelskaða. Hún er fantagóður hönnuður, hefur mikla reynslu af hönnun firmamerkja (og er góð í því) og hefur umbrotsreynslu sem fáir geta státað af.

Auglýsingaþjónustan var fyrsta stofan sem Anna vann hjá eftir að hún útskrifaðist úr MHÍ (nú Listaháskólinn) árið 1978. Anna byrjaði hjá GBB Auglýsingastofu (hjá Gísla B.) árið 1979 og haustið 1980 lágu leiðir þeirra Guðjóns saman fyrst, þegar hann bættist í hópinn hjá Gísla B. strax eftir útskrift úr MHÍ. Árið 1984 gekk Anna til liðs við Almennu auglýsingastofuna og var þar til ársins 1994.

Í um það bil hálft ár prófaði Anna sjálfstæði sem verktaki, en réð sig svo til Odda snemmsumars 1995. Leiðir hennar og Guðjóns lágu svo aftur saman þegar Guðjón byrjaði sem hönnunarstjóri haustið 1998. Auður Björnsdóttir grafískur hönnuður bættist í Oddahópinn vorið 1999.

Nú erum við XEINN.

Vandfundið er betra.